Rafrænn kynningarfundur verður haldinn 28. október kl. 8:30

Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung 2020 þann 27. október næstkomandi. Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 28. október 2020 og hefst kl. 8:30. Fundurinn verður eingöngu rafrænn og munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans https://www.siminn.is/umsimann/uppgjor og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: https://livestream.com/accounts/11153656/events/9362628/player

Þeir sem vilja bera upp spurningar á meðan á streymi stendur geta sent þær á fjarfestatengsl@siminn.is og verður þeim svarað í lok fundarins.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is.