Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um 1. september sl. er nú lokið.
Í 41. viku 2020 keypti Síminn hf. 9.685.028 eigin hluti að kaupverði 67.069.998 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
5.10.2020 | 09:32 | 3.000.000 | 6,900 | 20.700.000 | 227.994.656 |
6.10.2020 | 09:30 | 3.000.000 | 6,870 | 20.610.000 | 230.994.656 |
8.10.2020 | 10:27 | 3.000.000 | 6,970 | 20.910.000 | 233.994.656 |
9.10.2020 | 14:28 | 685.028 | 7,080 | 4.849.998 | 234.679.684 |
9.685.028 | 67.069.998 | 234.679.684 |
Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 1. september 2020. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 500 milljónum króna. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins árið 2021, en þó aldrei lengur en til 12. mars 2021 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.
Síminn átti 224.994.656 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 234.679.684 eða sem nemur 2,68% af útgefnum hlutum í félaginu.
Síminn hefur keypt samtals 72.685.028 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,83% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 499.999.998 kr.
Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.
Frá síðasta aðalfundi hefur Síminn keypt eigin bréf fyrir 1.499.999.984 krónur og greitt arð að fjárhæð 500.000.000 kr. Nemur það samtals 65,1% af hagnaði ársins 2019, en stefna félagsins er greiða hluthöfum árlega arð og/eða framkvæma endurkaup sem nemur að lágmarki 50% af hagnaði eftir skatta í samræmi við lög og reglur hverju sinni. Ekki liggur fyrir ákvörðun um frekari endurkaup að svo stöddu.
Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is.
Síminn hf.
Reykjavik, ICELAND
Síminn hf. Logo
Formats available: