Staðfesting og könnun eftirlitsaðila á sérstökum skilyrðum AL260148, AL231124 og AL260128
KPMG er eftirlitsaðili skuldabréfaflokkanna AL260148, AL231124 og AL260128. Eftirlitsaðili hefur það hlutverk að kanna og staðfesta sjálfstæða útreikninga útgefanda á fjárhagslegum og sérstökum skilyrðum skuldabréfaflokkanna.
KPMG hefur nú framkvæmt könnun á útreikningi sérstakra skilyrða skuldabréfaflokkanna.
Niðurstaða könnunar KPMG er í samræmi við útreikninga útgefanda þess efnis að skuldabréfaflokkarnir AL260148, AL231124 og AL260128 standist öll fjárhagsleg og sérstök skilyrði miðað við dagsetninguna 30.6.2020.
Niðurstöðu könnunarinnar má sjá hér í viðhengi.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri, í síma 848-5290 eða sigurdur@al.is
Viðhengi
Almenna leigufelagid ehf.
Reykjavík, ICELAND