Veðskuld slhf. – Árshlutareikningur – 6 mán.
Veðskuld slhf., félag í rekstri Júpíter rekstrarfélags hf., birtir árshlutareikning sinn fyrir árið 2020.
- Hagnaður af rekstri félagsins á fyrstu sex mánuðum ársins nam 37,8 milljónum króna samkvæmt rekstrarreikningi.
- Eigið fé nam 435,9 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi.
- Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. Við könnun kom ekkert fram sem bendir til annars en að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins á tímabilinu, fjárhagsstöðu þess 30. júní 2020 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu.
Nánari upplýsingar um ársreikning Veðskuldar slhf veitir starfsfólk Júpíter rekstrarfélags hf. í síma 5220010.