Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung 2020 þann 25. ágúst næstkomandi.

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 26. ágúst 2020 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:30.

Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans https://www.siminn.is/umsimann/uppgjor og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: https://livestream.com/accounts/11153656/events/9261536/player. Þeir sem vilja bera upp spurningar á meðan á streymi stendur geta sent þær á fjarfestatengsl@siminn.is og verður þeim svarað í lok fundarins.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is.