Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.
Tilboð í útboðinu voru 10 talsins og námu samtals 7.020 m. kr. að nafnverði.
Fjögur tilboð að fjárhæð 4.500 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,14%-2,19%. Tilboðum að fjárhæð 4.400 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,18%. Heildarstærð flokksins verður 31.040 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.
Sex tilboð að fjárhæð 2.520 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 25 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,48%-2,53%. Tilboðum að fjárhæð 2.320 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,51%. Heildarstærð flokksins verður 10.160 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 25. ágúst 2020. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.
Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.