IH 140647 - Boð á fund skuldabréfaeiganda

Fundarboð

14. ágúst 2020

Með vísan til ákvæða skuldabréfsins IH 140647 („skuldabréfið“) boða Íslandshótel ( „útgefandi“) til fundar eigenda skuldabréfsins sem haldinn verður klukkan 13:00 þann 28. ágúst 2020 í fundarherberginu Útgarði á Hótel Grand, Sigtúni 28, 105 Reykjavík.

Dagskrá fundarins:

  1. Tillaga í tveimur liðum um breytingu á skilmálum skuldabréfsins, þ.e.:
  1. Breytingar á greiðsluferli skuldabréfsins og gjalddögum vaxta og afborgana; og
  2. Breytingar á skilmálum skuldabréfanna um sérstök skilyrði, nánar tiltekið um fjárhagslega skilmála.

Meðfylgjandi fundarboði þessu er tillaga útgefanda sem tekin verður fyrir sem og umboðseyðublað.

Skráning fundargesta og afhending fundargagna verður á fundarstað frá klukkan 12:30 á fundardegi. Þeim fundargestum sem þess óska verður boðið upp á að taka þátt í fundinum með rafrænum hætti. Kjósi fundargestir að nýta sér þann möguleika er þess óskað að þeir hafi samband við útgefanda, í síðasta lagi miðvikudaginn 26. ágúst 2020.

Samkvæmt ákvæði skuldabréfsins um skilmálabreytingu skal ákvörðun um skilmálabreytingu tekin á fundi skuldabréfaeigenda en til fundarins skal boðað með tveggja vikna fyrirvara að lágmarki. Er fundur skuldabréfaeigenda lögmætur og ákvörðunarbær ef til hans er boðað með réttum hætti. Ákvörðun um skilmálabreytingu telst samþykkt hafi 90% þeirra skuldabréfaeigenda sem til fundarins mæta, miðað við fjárhæð, veitt samþykki sitt.

Frekari upplýsingar veitir:

Kolbrún Jónsdóttir, fjármálastjóri Íslandshótela – kolbrun.jonsdottir@islandshotel.is – 859 9844

Viðhengi