Í 30. viku 2020 keypti Síminn hf. 12.000.000 eigin hluti að kaupverði 74.355.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
21.7.202010:063.000.0006,06018.180.00095.684.955
22.7.202015:123.000.0006,22018.660.00098.684.955
23.7.202009:503.000.0006,25018.750.000101.684.955
24.7.202011:163.000.0006,25518.765.000104.684.955
  12.000.000 74.355.000104.684.955

Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 6. júlí 2020. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 500 milljónum króna. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins árið 2021, en þó aldrei lengur en til 12. mars 2021 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.

Síminn átti 92.684.955 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 104.684.955 eða sem nemur 1,20% af útgefnum hlutum í félaginu.

Síminn hefur keypt samtals 21.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,24% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 128.355.000 kr.

Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is.