Landsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 9. júní kl. 15:00. Boðnir verða til sölu tveir óverðtryggðir flokkar, LBANK CB 23 og LBANK CB 25.

Áætlaður uppgjörsdagur er 16. júní 2020.

Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is.