Sjóvá hefur borist tilkynning frá Arion banka sem er annar aðila sem sinnir viðskiptavakt með hlutabréf félagsins sbr. tilkynningar Sjóvá til Kauphallar frá 3. desember 2019 og 20. febrúar 2020.
Þann 20. mars 2020 var tilkynnt um að Arion banki hefði vikið frá skilyrðum í viðskiptavakasamningi vegna óviðráðanlegra aðstæðna sem þá voru uppi. Að mati Arion banka er ekki lengur fyrir hendi þörf á að beita framangreindum heimildum í samningnum og gilda því ákvæði hans um verðbil og fjárhæðir að nýju.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Vala Halldórsdóttir í síma 844-2136 eða fjarfestar@sjova.is