Skeljungi hf. hefur borist tilkynning frá Arion banka hf., sem er annar aðili sem sinnir viðskiptavakt með hlutabréf félagsins sbr. tilkynning Skeljungs hf. til Kauphallar 3. mars 2020 og 12. mars 2020.

Þann 12. mars 2020 var tilkynnt um að Arion banki hefði beitt heimild í samningum um að víkja frá skilyrðum samningsins í óviðráðanlegum aðstæðum, er varðar verðbil og fjárhæðir á meðan slíkt ástand varir.

Að mati bankans er ekki lengur fyrir hendi þörf á að beita framangreindri heimild og gilda því ákvæði samningsins um verðbil og fjárhæðir nú að nýju.

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, fjarfestar@skeljungur.is.


Skeljungur er orkufyrirtæki sem selur vörur og þjónustu á Íslandi, í Færeyjum og á Norður-Atlantshafinu. Meginstarfsemi félagsins er innflutningur, birgðahald, sala og dreifing á eldsneyti og eldsneytistengdum vörum og smásala. Félagið starfrækir 76 eldsneytisstöðvar og 6 birgðastöðvar á Íslandi og í Færeyjum. Auk þess selur félagið áburð og efnavörur á Íslandi og rekur verslanir og þjónustar og selur olíu til húshitunar í Færeyjum. Viðskiptavinir Skeljungs spanna frá einstaklingum til fyrirtækja, í sjávarútvegi, landbúnaði, flutningum, flugi og til verktaka. Starfsemin er rekin undir merkjunum Skeljungur, Orkan, Kvikk og Magn. Meginmarkmið Skeljungs er að þjóna orkuþörf einstaklinga og fyrirtækja á hagkvæman og öruggan máta í sátt við umhverfi sitt.

www.skeljungur.is

https://www.linkedin.com/company/skeljungur-hf/