Samsett hlutfall* í apríl 2020 var 109,4% en var 93,2% í apríl 2019. Samsett hlutfall það sem af er ári er 121,7% og samsett hlutfall síðustu 12 mánaða er 105,2%.
VÍS greiddi viðskiptavinum sínum rúman 1,2 milljarð króna í tjónabætur** í apríl og hefur greitt viðskiptavinum sínum rúma 6,1 milljarða króna í tjónabætur það sem af er ári.
Ávöxtun fjárfestingaeigna í apríl var 1,6% en ávöxtun frá áramótum er 1,2%.
*Samsett hlutfall er tjónakostnaður, endurtryggingakostnaður og rekstrarkostnaður af vátryggingastarfsemi sem hlutfall af iðgjöldum tímabilsins samkvæmt leiðbeinandi tilmælum Seðlabanka Íslands, fjármálaeftirlits nr. 1/2020.
**Hafa skal í huga að tjónakostnaður tryggingafélaga getur sveiflast á milli mánaða.
Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5260 eða með netfanginu erlat@vis.is