Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.
Tilboð í útboðinu voru 31 talsins og námu samtals 6.220 m. kr. að nafnverði.
Fimmtán tilboð að fjárhæð 3.740 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 25 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,94%-3,00%. Tilboðum að fjárhæð 3.380 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,99%. Heildarstærð flokksins verður 6.400 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.
Sextán tilboð að fjárhæð 2.480 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 26 á ávöxtunarkröfu á bilinu 1,02%-1,10%. Tilboðum að fjárhæð 1.660 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 1,07%. Heildarstærð flokksins verður 8.800 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 28. apríl 2020. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.
Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.