Kviku banka hf. hafa borist tilkynningar frá Íslandsbanka hf. og Arion banka hf. sem sinna viðskiptavakt með hlutabréf Kviku. Samkvæmt tilkynningunum munu báðir aðilar beita heimild í samningunum um að víkja frá skilyrðum þeirra í óviðráðanlegum aðstæðum er varðar verðbil og fjárhæðir á meðan slíkt ástand varir.