Kynningarfundur verður haldinn 21. febrúar kl. 8:30

Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung 2019 þann 20. febrúar næstkomandi.

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn föstudaginn 21. febrúar 2020 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:30.

Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans https://www.siminn.is/umsimann/uppgjor og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni:
https://livestream.com/accounts/11153656/events/8987781/player