Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.
Tilboð í útboðinu voru 35 talsins og námu samtals 5.760 m. kr. að nafnverði.
Fjórtán tilboð að fjárhæð 2.160 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,59%-3,67%. Tilboðum að fjárhæð 2.060 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 3,65%. Heildarstærð flokksins verður 23.400 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.
21 tilboð að fjárhæð 3.600 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 26 á ávöxtunarkröfu á bilinu 1,40%-1,46%. Tilboðum að fjárhæð 3.220 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 1,45%. Heildarstærð flokksins við útgáfu verður 5.840 m. kr.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 18. febrúar 2020. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.
Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.