Landsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 11. febrúar kl. 15:00. Boðinn verður til sölu einn verðtryggður flokkur, LBANK CBI 26 og einn óverðtryggður flokkur, LBANK CB 23.
Áætlaður uppgjörsdagur er 18. febrúar 2020.
Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is.