Arion banki hf. lauk í dag útboði á tveimur markflokkum sértryggðra skuldabréfa.
Heildareftirspurn í útboðinu var 4.420 m. kr. og fjöldi tilboða var 28.
Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 26 bárust 14 tilboð að nafnvirði samtals 2.360 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 1,38-1,47%. Tilboðum að nafnvirði 1.660 m.kr. á kröfunni 1,44% voru samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 14.620 m.kr. að nafnvirði eftir útgáfuna.
Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 24 bárust 14 tilboð að nafnvirði samtals 2.060 m. kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,60-3,72%. Tilboðum að nafnvirði 940 m.kr. á kröfunni 3,66% voru samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 20.180 m.kr eftir útgáfuna.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Ísland þann 12. febrúar 2020.
Nánari upplýsingar veitir Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, theodor.fridbertsson@arionbanki.is, s. 444 6760