Í tengslum við útboð sem haldið var 31. janúar stóð aðalmiðlurum til boða, samkvæmt 6. grein í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa, að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í RIKB 21 0805 fyrir 439 m.kr. Uppgjör er 5. febrúar 2020. Heildarstærð flokksins er nú 18.314.000.000 kr. að nafnvirði.