Í viku 37 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 1.038.132 eigin hluti að kaupverði 17.410.851 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
9.9.2019 | 14:05:41 | 19.066 | 16,7 | 318.402 |
10.9.2019 | 13:51:42 | 500.000 | 16,8 | 8.400.000 |
11.9.2019 | 14:45:35 | 500.000 | 16,75 | 8.375.000 |
13.9.2019 | 13:11:11 | 19.066 | 16,65 | 317.449 |
Samtals | 1.038.132 | 17.410.851 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 2. september 2019.
Sjóvá átti 13.378.165 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 14.416.297 eigin hluti eða sem nemur 1,04% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 1.082.964 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,078% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 18.155.062 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 15.060.241 hlutum eða sem nemur 1,08% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2020, en þó aldrei lengur en til 6. mars 2020, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is