Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf., sem haldinn var 15. mars 2019, veitti stjórn félagsins heimild til að kaupa allt að 138.919.676 eigin hluti í félaginu, en það jafngildir 10% af útgefnu hlutafé félagsins þegar tekið hefur verið tillit til hlutafjárlækkunar sem samþykkt var á sama aðalfundi. Heimildina skal einungis nýta í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til þess að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup á eigin bréfum. Heimildin gildir í 18 mánuði og takmarkast við að eignarhald félagsins og dótturfélaga þess fari ekki umfram 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma.
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. tilkynntu um framkvæmd endurkaupaáætlunar þann 27. maí 2019 og keypti félagið samkvæmt áætluninni samtals 13.333.333 eigin hluti að kaupverði 245.864.177 krónur, eða sem nemur 0,96% af útgefnu hlutafé í Sjóvá Almennum tryggingum hf.
Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. hefur á grundvelli framangreindrar heimildar og að teknu tilliti til kaupa á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætluninni sem lauk þann 15. ágúst 2019 tekið ákvörðun um frekari kaup á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Endurkaupin munu að hámarki nema 15.060.241 hlutum eða 1,08% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó þannig að heildarkaupverð verði ekki hærra en 250 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að endurkaupum samkvæmt áætluninni ljúki í síðasta lagi til og með 6. mars 2020.
Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags munu að hámarki nema 789.982 hluti eða sem nemur 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins á aðalmarkaði Kauphallar Íslands hf. í ágúst 2019. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.
Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. eiga 13.333.333 hluti, eða sem nemur 0,96% af útgefnu hlutafé áður en endurkaup samkvæmt endurkaupaáætluninni hefjast.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Vala Halldórsdóttir í síma 844-2136 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is