Í 34. viku 2019 keypti Síminn hf. 12.000.000 eigin hluti að kaupverði 54.340.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
19.8.2019 | 10:01 | 4.000.000 | 4,530 | 18.120.000 | 349.319.193 |
20.8.2019 | 14:05 | 4.000.000 | 4,525 | 18.100.000 | 353.319.193 |
21.8.2019 | 14:13 | 4.000.000 | 4,530 | 18.120.000 | 357.319.193 |
12.000.000 | 54.340.000 | 357.319.193 |
Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 28. júní 2019.
Síminn átti 345.319.193 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 357.319.193 eða sem nemur 3,86% af útgefnum hlutum í félaginu.
Síminn hefur keypt samtals 140.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,51% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 636.860.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 1.310 milljónum króna. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins árið 2020, en þó aldrei lengur en til 21. mars 2020 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.
Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.
Nánari upplýsingar veitir Ásta Nína Benediktsdóttir fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is