Samsett hlutfall* var 94,8% í júní en það var 97,0% í júní 2018. Samsett hlutfall það sem af er ári er 99,1% og samsett hlutfall síðustu 12 mánaða er 96,8%.
Ávöxtun fjárfestingaeigna VÍS í júní var 0,2% en ávöxtun frá áramótum er 8,2%.
VÍS greiddi viðskiptavinum sínum rúmlega 1,1 milljarð króna í tjónabætur** í júní og hefur greitt viðskiptavinum tæplega 8,2 milljarða króna í tjónabætur það sem af er ári.
*Samsett hlutfall er tjónakostnaður, endurtryggingakostnaður og rekstrarkostnaður af vátryggingahluta sem hlutfall af iðgjöldum.
**Hafa skal í huga að tjónakostnaður tryggingafélaga getur sveiflast mjög á milli mánaða.
Nánari upplýsingar veitir Óskar Þorvaldsson samskiptastjóri í síma 660 5252.