Vísað er til tilkynningar Vátryggingafélags Íslands hf. frá 15. maí sl. um ákvörðun stjórnar um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Þar kom fram að endurkaupin, sem gerð væru í þeim tilgangi að lækka hlutafé, væru háð samþykki Fjármálaeftirlitsins. Félaginu barst í dag samþykki Fjármálaeftirlitsins. Samkvæmt því skal hámarksfjöldi hluta sem áætlunin kveður á um að verði keyptir vera að nafnverði kr. 16.000.000, en það jafngildir um 0,82 % af útgefnu hlutafé félagsins. Fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en kr. 200.000.000. Heimildin gildir til og með 30. september 2019.
Endurkaupin verða framkvæmd af Kviku banka hf., sem tekur allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu. Framkvæmd endurkaupaáætlunar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.
Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq Iceland, hvort sem er hærra. Hámarksmagn hvers viðskiptadags er 1.500.000 hlutir að nafnverði. Viðskipti félagsins með eigin hluti í tengslum við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir.
VÍS á 42.600.000 hluti í félaginu á þessum tímapunkti.
Nánari upplýsingar veitir Óskar Þorvaldsson í síma 660-5252 og á netfanginu: fjarfestatengsl@vis.is