Í 27. viku 2019 keypti Síminn hf. 20.000.000 eigin hluti að kaupverði 90.420.000 kr. eins og nánar greinir í sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
1.7.2019 | 10:45 | 4.000.000 | 4,575 | 18.300.000 | 221.319.193 |
2.7.2019 | 10:17 | 4.000.000 | 4,500 | 18.000.000 | 225.319.193 |
3.7.2019 | 12:15 | 4.000.000 | 4,515 | 18.060.000 | 229.319.193 |
4.7.2019 | 10:29 | 4.000.000 | 4,515 | 18.060.000 | 233.319.193 |
5.7.2019 | 10:24 | 4.000.000 | 4,500 | 18.000.000 | 237.319.193 |
Samtals | 20.000.000 | 90.420.000 |
Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 28. júní 2019.
Síminn átti 217.319.193 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 237.319.193 eigin hluti eða sem nemur 2,57% af útgefnum hlutum í félaginu.
Síminn hefur keypt samtals 20.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,22% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 90.420.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 1.310 milljónum króna. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins árið 2020, en þó aldrei lengur en til 21. mars 2020 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.
Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.
Nánari upplýsingar veitir Ásta Nína Benediktsdóttir fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is