Í 27. viku 2019, keypti félagið 9.577.749 eigin hluti fyrir 78.154.432 kr. eins og hér segir:

DagsetningTímasetning viðskiptaKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr)
1.7.201914:57:42  3.192.583 8,16  26.051.477 
2.7.201912:24:00  3.192.583 8,16  26.051.477 
3.7.201914:42:34  3.192.583 8,16  26.051.477 
Samtals   9.577.749     78.154.432 

Um er að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins, sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 7. júní 2019. Kaupin eru liður í að uppfylla arðgreiðslustefnu félagsins, þ.e. að greiða árlega til hluthafa 30-50% af hagnaði í formi arðgreiðslu eða endurkaupa á hlutum.

Skeljungur hefur nú keypt samtals 54.273.911 hluti í félaginu skv. áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 446.770.065 sem samsvarar 81,23% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Skeljungur átti áður en fyrrnefnd áætlun hófst 99.504.521 hluti eða um 4,62% af heildarhlutafé félagsins. Skeljungur á nú samtals 153.778.432 hluti, eða 7,15% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni má heildarkaupverð ekki vera hærra en kr. 550.000.000, með þeim fyrirvara að félagið ásamt dótturfélögum þess mega mest eiga 10% hlutafjár þess. Endurkaupaáætlunin verður í gildi fram að aðalfundi félagsins 2020, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög nr. 2/1995 um hlutafélög og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.

Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ólafsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, fjarfestar@skeljungur.is, 840-3071.

Skeljungur er orkufyrirtæki sem selur vörur og þjónustu á Íslandi, í Færeyjum og á Norður-Atlantshafinu. Meginstarfsemi félagsins er innflutningur, birgðahald, sala og dreifing á eldsneyti og eldsneytistengdum vörum. Félagið starfrækir 76 eldsneytisstöðvar og 6 birgðastöðvar á Íslandi og í Færeyjum. Auk þess selur félagið áburð og og efnavörur á Íslandi og rekur verslanir og þjónustar og selur olíu til húshitunar í Færeyjum. Viðskiptavinir Skeljungs spanna frá einstaklingum til fyrirtækja, í sjávarútvegi, landbúnaði, flutningum, flugi og til verktaka. Starfsemin er rekin undir merkjunum Skeljungur, Orkan, OrkanX og Magn. Meginmarkmið Skeljungs er að að þjóna orkuþörf einstaklinga og fyrirtækja á hagkvæman og öruggan máta í sátt við umhverfi sitt.