Í 25. viku 2019, keypti félagið 12.770.332 eigin hluti fyrir 105.546.794 kr. eins og hér segir:
Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr) |
18.6.2019 | 09:38:32 | 3.192.583 | 8,23 | 26.274.958 |
19.6.2019 | 14:30:57 | 3.192.583 | 8,23 | 26.274.958 |
20.6.2019 | 15:08:58 | 3.192.583 | 8,3 | 26.498.439 |
21.6.2019 | 10:01:25 | 3.192.583 | 8,3 | 26.498.439 |
Samtals | 12.770.332 | 105.546.794 |
Um er að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins, sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 7. júní 2019. Kaupin eru liður í að uppfylla arðgreiðslustefnu félagsins, þ.e. að greiða árlega til hluthafa 30-50% af hagnaði í formi arðgreiðslu eða endurkaupa á hlutum.
Skeljungur hefur nú keypt samtals 28.733.247 hluti í félaginu skv. áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 236.251.142 sem samsvarar 47,25% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Skeljungur átti áður en fyrrnefnd áætlun hófst 99.504.521 hluti eða um 4,62% af heildarhlutafé félagsins. Skeljungur á nú samtals 128.237.768 hluti, eða 5,96% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni má heildarkaupverð ekki vera hærra en kr. 500.000.000, með þeim fyrirvara að félagið ásamt dótturfélögum þess mega mest eiga 10% hlutafjár þess. Endurkaupaáætlunin verður í gildi fram að aðalfundi félagsins 2020, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög nr. 2/1995 um hlutafélög og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.
Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ólafsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, fjarfestar@skeljungur.is, 840-3071.
Skeljungur er orkufyrirtæki sem selur vörur og þjónustu á Íslandi, í Færeyjum og á Norður-Atlantshafinu. Meginstarfsemi félagsins er innflutningur, birgðahald, sala og dreifing á eldsneyti og eldsneytistengdum vörum. Félagið starfrækir 76 eldsneytisstöðvar og 6 birgðastöðvar á Íslandi og í Færeyjum. Auk þess selur félagið áburð og og efnavörur á Íslandi og rekur verslanir og þjónustar og selur olíu til húshitunar í Færeyjum. Viðskiptavinir Skeljungs spanna frá einstaklingum til fyrirtækja, í sjávarútvegi, landbúnaði, flutningum, flugi og til verktaka. Starfsemin er rekin undir merkjunum Skeljungur, Orkan, OrkanX og Magn. Meginmarkmið Skeljungs er að að þjóna orkuþörf einstaklinga og fyrirtækja á hagkvæman og öruggan máta í sátt við umhverfi sitt.