Í 25. viku 2019 keypti Eimskip 407.874 eigin hluti fyrir kr. 77.730.188 samkvæmt neðangreindu:
Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð |
18.6.2019 | 14:02:47 | 119.236 | 189 | 22.535.604 |
19.6.2019 | 14:55:29 | 40.000 | 189,5 | 7.580.000 |
20.6.2019 | 14:37:46 | 123.505 | 191,25 | 23.620.331 |
21.6.2019 | 09:55:37 | 125.133 | 191,75 | 23.994.253 |
Samtals | 407.874 | 77.730.188 |
Um er að ræða kaup Eimskips á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í kauphöll þann 10. júní 2019.
Eimskip átti 360.770 eigin hluti fyrir viðskiptin, sem nam 0,19% af heildarhlutafé félagsins, og á að þeim loknum 1,174,009 sem nemur 0,63% af heildarhlutafé félagsins.
Eimskip keypti í viku 25 samtals 407.874 hluti í félaginu. Kaupverð hinna keyptu hluta nam samtals kr. 77.730.188 sem samsvarar 15,6% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir skv. áætluninni.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptar 3.000.000 hluta og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en kr. 500.000.000. Heimildin gildir til 24. janúar 2020, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, markaðs- og samskiptastjóri í síma 825-3399 eða investors@eimskip.is