Í viku 23 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 1.000.000 eigin hluti að kaupverði 18.600.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
07.06.2019 | 11:59:29 | 990.109 | 18,60 | 18.416.027 |
07.06.2019 | 12:57:34 | 9.891 | 18,60 | 183.973 |
Samtals | 1.000.000 | 18.600.000 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 27. maí 2019.
Sjóvá átti 1.000.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 2.000.000 eigin hluti eða sem nemur 0,14% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 2.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,14% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 37.500.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 13.333.333 hlutum eða sem nemur 0,96% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2020, en þó aldrei lengur en til 6. mars 2020, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is