Samkvæmt 5. grein í skilmálum um útboð ríkisbréfa, sem haldið var 7. júní stóð aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér ekki kaupréttinn í RIKB 28 1115. Heildarstærð eftir útboðið í RIKB 28 1115 er nú 61.001.601.519 kr. að nafnvirði. Uppgjör er 12. júní 2019.