Landsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum miðvikudaginn 12. júní kl. 15:00. Boðnir verða til sölu tveir verðtryggðir flokkar, LBANK CBI 24 og LBANK CBI 28 og tveir óverðtryggðir flokkar, LBANK CB 21 og LBANK CB 23.
Samhliða útboðinu fer fram skiptiútboð þar sem eigendur óverðtryggða flokksins LBANK CB 19 eiga þess kost að selja bréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Verð skuldabréfa í flokki LBANK CB 19 er fyrirframákveðið og er 100,705.
Áætlaður uppgjörsdagur er 19. júní 2019.
Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is.