Marel hf. – Veiting kauprétta
Stjórn Marel hf. ákvað þann 6. júní 2019 að veita tilteknum starfsmönnum félagsins í lykilstöðum kauprétti sem samsvarar 4,1 milljónum hluta í félaginu.
Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma. Skilmálar eru í samræmi við kaupréttarkerfi sem samþykkt var á aðalfundi Marel hf. þann 6. mars 2019 í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á sama fundi.
Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:
Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Marel hf. hefur veitt starfsmönnum sínum nemur nú 19,6 milljónum hluta, sem nemur um 2,6% hlutafjár í félaginu, og er þá meðtalin þessi nýja úthlutun kauprétta. Heildarkostnaður félagsins vegna nýju samninganna á næstu þremur árum er áætlaður um 2,5 milljónir evra og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.
Fyrirhugað er að ganga frá samningum vegna úthlutunar á ofangreindum kaupréttum eftir birtingu uppgjörs annars ársfjórðungs, þann 24. júlí 2019.
1 Kaupréttargengið er ákvarðað út frá útboðsgengi í hlutafjárútboði Marel hf. sem lauk þann 6. júní 2019.