Arion banki hf. lauk í dag útboði á tveimur markflokkum sértryggðra skuldabréfa.

Heildareftirspurn í útboðinu var 5.880 m. kr. og fjöldi tilboða var 18.

Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 26 bárust 4 tilboð að nafnvirði samtals 700 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 1,51-1,55%. Tilboðum að nafnvirði 500 m.kr. á kröfunni 1,53% voru samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 10.560 m.kr. að nafnvirði eftir útgáfuna.  

Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 24 bárust 14 tilboð að nafnvirði samtals 5.180 m. kr., á ávöxtunarkröfu  á bilinu 4,47-4,55%.  Tilboðum að nafnvirði 3.180 m.kr. á kröfunni 4,52% voru samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 14.600 m.kr eftir útgáfuna.

Í samræmi við útboðstilkynningu kaupir Arion banki 40 m.kr. af ARION CBI 19 gegn sölu í útboðinu.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Ísland þann 11. júní 2019.

Nánari upplýsingar veitir Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, theodor.fridbertsson@arionbanki.is, s. 444 6760