Arion banki verður með útboð á sértryggðu skuldabréfaflokkunum ARION CB 24 og ARION CBI 26 þann 4. júní næstkomandi.

Fjárfestum býðst að greiða fyrir sértryggðu skuldabréfin með flokkunum ARION CBI 19 og ARION CB 19. Arion banki mun þá kaupa ARION CB 19 á fyrirframákveðnu verði þ.e hreina verðinu 100.7747 sem jafngildir ávöxtunarkröfunni 4,00%.


ARION CBI 19 yrði einnig keyptur til baka á hreina verðinu 100,107 sem jafngildir ávöxtunarkröfunni 1,25%.

Andvirði ARION CBI 19 og CB 19 ásamt áföllnum vöxtum kemur þá sem greiðsla upp í kaup á nýjum bréfunum sem gefin verða út þann 11. júní 2019.

Einnig býðst fjárfestum að greiða fyrir sértryggð skuldabréf með neðangreindum flokkum verðbréfa auk hefðbundins uppgjörs í reiðufé. Verð skuldabréfanna miðast við miðju kröfubils á milli hagstæðustu viðskiptavaka við lokun markaðar á útboðsdegi.

ISIN Flokkur
XS0195066146 HFF150224
XS0195066575 HFF150434
XS0195066658 HFF150644
IS0000024453 RIKB 20 0205
IS0000020717 RIKB 22 1026
IS0000019321 RIKB 25 0612
IS0000028249 RIKB 28 1115
IS0000020386 RIKB 31 0124
IS0000020014 RIKS 21 0414
IS0000030732 RIKS 26 0216
IS0000020576 RIKS 30 0701

Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka verða útboð sértryggðra skuldabréfa haldin að jafnaði fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði. Sjá útgáfuáætlun fyrir árið 2019: http://wwwv2.arionbanki.is/bankinn/fjarfestatengsl/skuldabrefafjarfestar/utgafuaaetlun/

Nánari upplýsingar veitir Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, theodor.fridbertsson@arionbanki.is, s. 444 6760