Samkvæmt 5. grein í skilmálum um útboð ríkisbréfa, sem haldið var 24. maí stóð aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér ekki kaupréttinn í RIKS 26 0216. Heildarstærð eftir útboðið í RIKS 26 0216 er nú 17.532.700.000 kr. að nafnvirði. Uppgjör er 29. maí 2019.