Nettó skuldir halda áfram að lækka og eiginfjárhlutfall að styrkjast

Helstu atriði árshlutareiknings

Hörður Arnarson, forstjóri:

„Rekstur Landsvirkjunar gekk áfram vel á fyrsta ársfjórðungi og einkenndist af sterku sjóðstreymi, en handbært fé frá rekstri var rúmlega 10 milljarðar króna (84 milljónir dollara). Var því einkum varið í að lækka skuldir, en á síðustu 12 mánuðum hafa nettó skuldir Landsvirkjunar lækkað um 29 milljarða króna (236 milljónir dollara). Tekjur lækkuðu um 5,7% á milli ára, einkum vegna 13% lækkunar á álverði, minni orkusölu og veikingar íslensku krónunnar, en á sama tíma lækkaði rekstrar- og viðhaldskostnaður um 14,5% frá fyrra ári.“

Viðhengi