Leiðrétting: Nýr skuldabréfaflokkur í SEK í stað stækkunar þegar útgefins flokks
Landsbankinn gefur út skuldabréf að fjárhæð 300m NOK og SEK 600m
Landsbankinn lauk í dag sölu á skuldabréfum með breytilegum vöxtum til átján mánaða að fjárhæð 300 milljónir norskra króna og 600 milljónir sænskra króna. Gert er ráð fyrir að skuldabréfin fái lánshæfiseinkunnina BBB+ frá S&P Global Ratings.
Skuldabréfin voru seld á kjörum sem jafngilda 83 punkta álagi á þriggja mánaða millibankavexti í norskum krónum og 85 punkta álagi á þriggja mánaða millibankavexti í sænskum krónum.
Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN-útgáfuramma bankans og er stefnt að töku skuldabréfanna í norskum krónum til viðskipta á Euronext Dublin þann 27. maí 2019 og í sænskum krónum þann 29. maí 2019.
Umsjónaraðilar sölunnar voru Nordea, SEB og Swedbank.