Landsbankinn lauk í dag sölu á skuldabréfum með breytilegum vöxtum til átján mánaða að fjárhæð 300 milljónir norskra króna. Gert er ráð fyrir að skuldabréfin fái lánshæfiseinkunnina BBB+ frá S&P Global Ratings.
Skuldabréfin voru seld á kjörum sem jafngilda 83 punkta álagi á þriggja mánaða millibankavexti í norskum krónum.
Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN-útgáfuramma bankans og er stefnt að töku skuldabréfanna til viðskipta á Euronext Dublin þann 27. maí 2019.
Einnig samþykkti Landsbankinn að stækka áður útgefinn flokk með gjalddaga í nóvember 2020 (ISIN XS1523193123) að fjárhæð 600m SEK.
Skuldabréfin voru seld á kjörum sem jafngilda 85 punkta álagi á þriggja mánaða millibankavexti í sænskum krónum.
Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN-útgáfuramma bankans og er stefnt að töku skuldabréfanna til viðskipta á Euronext Dublin þann 29. maí 2019.
Umsjónaraðilar sölunnar voru Nordea, SEB og Swedbank.