Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn föstudaginn 7. júní 2019 og hefst hann kl. 09:00 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík.
Dagskrá fundarins:
Tillögur stjórnar Haga hf.:
Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund að ársreikningur félagsins fyrir starfsárið 2018/19, ásamt skýrslu endurskoðanda, verði samþykktur.
Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund að greiddur verði arður til hluthafa vegna reikningsársins 2018/19 sem nemi 50% hagnaðar ársins eða samtals 1.158,5 milljónum króna, eins og fram kemur í ársreikningi félagsins. Arðgreiðslan nemur því 1,05 kr. á hlut.
Samþykki aðalfundur tillöguna skal arðsréttindadagur vera 12. júní 2019. Arðleysisdagur, þ.e. sá dagur sem viðskipti hefjast með bréf félagsins án réttar til arðs vegna reikningsársins 2018/19 verður því 11. júní 2019, eða næsti viðskiptadagur eftir aðalfund. Útborgunardagur arðs verður 27. júní 2019.
Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund að stjórnarlaun verði óbreytt eða sem hér segir: Stjórnarformaður kr. 660.000,- á mánuði, varaformaður kr. 495.000,- á mánuði og stjórnarmenn kr. 330.000,- á mánuði. Stjórn gerir tillögu um að laun fyrir setu í undirnefndum stjórnar verði einnig óbreytt, eða kr. 90.000,- á mánuði og að laun formanns verði tvöföld upphæð. Þá gerir stjórn tillögu um að nefndarmönnum í tilnefningarnefnd verði greitt skv. reikningi 20 þús. kr. pr/klst.
Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund félagsins að meðfylgjandi starfskjarastefna verði samþykkt.
Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund félagsins að meðfylgjandi starfsreglur tilnefningarnefndar verði samþykktar.
Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund að þrír eftirtaldir fulltrúar verðir kjörnir í tilnefningarnefnd félagsins. Meirihluti þeirra er óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess.
Skv. starfsreglum tilnefningarnefndar geta hluthafar komið með tillögu að einstaklingum sem kjósa skal í tilefningarnefnd og skal slík skrifleg tillaga berast stjórn Haga hf. eigi síðar en tíu dögum fyrir aðalfund.
Framboð til setu í stjórn Haga hf. skal berast skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar. Upplýsingar um frambjóðendur verða birtar að þeim fresti loknum.
Tillögur tilnefningarnefndar um frambjóðendur til stjórnar voru kynntar þann 15. maí sl. Skýrsla tilnefningarnefndar er meðfylgjandi.
Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund félagsins að PricewaterhouseCoopers ehf., kt. 690681-0139, verði kosinn endurskoðandi félagsins fyrir komandi rekstrarár. Endurskoðanda félagsins verður greitt í samræmi við útgefna og samþykkta reikninga.
Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund félagsins að félaginu verði heimilt að kaupa á næstu 18 mánuðum allt að 10% af heildarhlutafé félagsins, í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun, skv. 116. gr. laga um verðbréfaviðskipti eða á grundvelli 1. tölul. 3. mgr. 115. gr. og 2. mgr. 119. gr. laga um verðbréfaviðskipti og reglugerða sem settar eru á grundvelli sömu ákvæða.
Með sátt Haga hf. við Samkeppniseftirlitið, vegna samruna félagsins, Olíuverzlunar Íslands ehf. og DGV ehf., undirgengust Hagar hf. meðal annars þá skyldu að leggja fram samkeppnisstefnu til samþykktar á hluthafafundi. Stjórn Haga hf. leggur til að meðfylgjandi samkeppnisstefna félagsins verði samþykkt.
Hluthafar sem ekki sjá sér fært að mæta til fundar og heimila ekki öðrum aðila til að mæta á fund í sínu umboði geta tekið þátt í atkvæðagreiðslu á fundinum bréflega. Meðfylgjandi má finna nánari leiðbeiningar og atkvæðaseðil.
Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar fimmtudaginn 23. maí nk. Hluthöfum er þó bent á að óski þeir eftir að fá mál sett á dagskrá eða leggja fram ályktunartillögur á fundinum þarf að beina því skriflega og í endanlegu formi til félagsstjórnar eigi síðar en 10 dögum fyrir fund (þriðjudaginn 28. maí nk.) á netfangið adalfundur@hagar.is, eins og kveðið er á um í 1. og 2. mgr. 86. gr. hlutafélagalaga, sbr. lög nr. 2/1995. Kann endurskoðuð dagskrá að birtast þann dag.
Hluthöfum er bent á að hægt er að tilkynna um framboð til stjórnar skriflega skemmst 5 sólarhringum fyrir aðalfund, þ.e. eigi síðar en kl. 09:00 þann 2. júní 2019. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða tilkynntar eigi síðar en 2 dögum fyrir fund.
Þá vill stjórn minna á að samkvæmt starfsreglum tilnefningarnefndar geta hluthafar komið með tillögu að einstaklingum sem kjósa skal í tilnefningarnefnd og skal slík skrifleg tillaga berast stjórn Haga hf. eigi síðar en tíu dögum fyrir aðalfund (þriðjudaginn 28. maí nk.).
Stjórn félagsins vill árétta að forsvarsmenn hluthafa sem sækja fundinn, þ.e. forsvarsmenn fyrirtækja, lífeyrissjóða, fjárfestingasjóða, einstaklinga eða annarra hluthafa, ber að skila umboði við skráningu inn á fundinn. Einnig verða einstaklingar beðnir um að framvísa persónuskilríkjum.
Stjórn Haga hf.
Viðhengi