Festi birtir uppgjör sitt fyrir 1. ársfjórðung 2019 eftir lokun markaða mánudaginn 20. maí næstkomandi.
Opinn kynningarfundur verður haldinn þriðjudaginn 21. maí 2019 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 - 14 Kópavogi 3. hæð. Eggert Kristófersson forstjóri Festi mun kynna afkomu samstæðunnar og svara spurningum.
Fundurinn hefst kl. 08:30. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 08:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Festi: www.festi.is/fjarfestatengsl