Lánasjóður sveitarfélaga hefur frá áramótum gefið út skuldabréf að fjárhæð 9,1 milljarðar að markaðsvirði (8,5 ma.kr. að nafnverði). Til viðbótar er áætlað að gefa út skuldabréf á bilinu 900 til 2.900 milljónir á fyrri hluta ársins. Áætluð heildarútgáfa á seinni hluta ársins er 5 til 7 milljarðar. Áætluð heildarútgáfa ársins er á bilinu 15 til 19 milljarðar að markaðsverðmæti, samanborðið við fyrri áætlun sem gerði ráð fyrir 12 til 16 milljörðum.
Samantekt:
Áætlun 2019 | 1H | 2H | Alls |
Útgáfa skuldabréfa | 10-12 | 5-7 | 15-19 |
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Lánasjóðsins.
Frekari upplýsingar veitir Örvar Þór Ólafsson s: 515-4947