Samkvæmt 5. grein í skilmálum um útboð ríkisbréfa, sem haldið var 12. apríl stóð aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í RIKS 21 0414 fyrir 37,5 m.kr. Heildarstærð eftir útboðið í RIKS 21 0414 er nú 62.171.093.000 kr. að nafnvirði.  Uppgjör er 17. apríl 2019.