Arion banki verður með víxlaútboð mánudaginn 15. apríl 2019. Um er að ræða víxla til 5 mánaða og 6 mánaða með gjalddaga 20. september 2019 og 21. október 2019. Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið verdbrefamidlun@arionbanki.is fyrir kl. 16:00 þann 15. apríl en greiðslu- og uppgjörsdagur er 17. apríl 2019.
Nánari upplýsingar veitir Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, s. 444 6760