Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem þrír flokkar voru boðnir til sölu.
Heildartilboð í útboðinu voru 15 talsins og námu samtals 1.880 m. kr. að nafnverði.
Tvö tilboð að fjárhæð 120 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfunni 4,98%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.
Sjö tilboð að fjárhæð 820 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 24 á ávöxtunarkröfu á bilinu 1,90%-1,97%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 1,97%. Heildarstærð flokksins verður 33.200 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.
Sex tilboð að fjárhæð 940 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 1,92%-1,95%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 1,95%. Heildarstærð flokksins verður 35.920 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 17. apríl 2019. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.
Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.