Samkvæmt 5. grein í skilmálum um útboð ríkisbréfa, sem haldið var 5. apríl stóð aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í RIKB 28 1115 fyrir 145 m.kr. Heildarstærð eftir útboðið í RIKB 28 1115 er nú 58.751.601.519 kr. að nafnvirði. Uppgjör er 10. apríl 2019.