Íslandsbanki hefur birt grunnlýsingu  sértryggðra skuldabréfa sem skráð eru á skipulegan verðbréfamarkað, Nasdaq Iceland.

Grunnlýsingin, dagsett  9. apríl 2019, er gefin út á ensku og birt á vefsíðu bankans,  https://gamli.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/fjarmognun/sertryggd-skuldabref/grunnlysing-og-vidaukar/

Skjölin má nálgast á pappírsformi hjá útgefanda, Íslandsbanka hf., Hagasmára 3, 201 Kópavogi, næstu 12 mánuði frá 9. apríl 2019.

Nánari upplýsingar veitir:

Fjárfestatengsl – Gunnar Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665.

Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlegast skráðu þig hér: https://gamli.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/hafdu-samband/postlisti/

Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er leiðandi fjármálafyrirtæki á Íslandi með heildareignir sem nema 1.130 ma. kr. og með 25-50% markaðshlutdeild á innanlandsmarkaði. Saga Íslandsbanka spannar 140 ár af þjónustu við lykilatvinnuvegi þjóðarinnar en á þessum tíma hefur bankinn byggt upp sérþekkingu á sviði ferðaþjónustu, sjávarútvegs og orku. Framtíðarsýn Íslandsbanka er að vera #1 í þjónustu og vinna þrjú viðskiptasvið þétt saman til að tryggja góð sambönd við viðskiptavini bankans. Til að koma enn betur til móts við þarfir viðskiptavina, þá hefur Íslandsbanki þróað margvíslegar nýjar stafrænar lausnir s.s. öpp fyrir bankaþjónustu og Kass. Á sama tíma rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið með 14 útibú staðsett á lykilstöðum um land allt. Sjötta árið í röð mældist Íslandsbanki efstur í Íslensku ánægjuvoginni  hjá viðskiptavinum í bankaþjónustu og þá var bankinn einnig útnefndur besti bankinn á Íslandi árið 2018 af Euromoney. Íslandsbanki hefur BBB+/A-2 lánshæfismat frá S&P Global Ratings. www.islandsbanki.is 

Fyrirvari
Framangreind fréttatilkynning gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er ábyrgð fjárfestis að reiða sig ekki seinna meir á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari  fréttatilkynningu  þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út.  Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.