Birting viðauka við grunnlýsingu
Almenna leigufélagið ehf., kt. 611013-0350, Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík (útgefandi), hefur birt viðauka við grunnlýsingu í tengslum við 30.000.000.000 króna útgáfuramma skuldabréfa og víxla félagsins, sem dagsett er 10. desember 2018. Viðaukinn sem er dagsettur 8. apríl 2019 hefur verið staðfestur af Fjármálaeftirlitinu.
Viðaukinn er á íslensku og birtur með rafrænum hætti á vef Almenna leigufélagsins ehf., https://www.al.is/#!/investors/bond-issuance. Fjárfestar geta einnig nálgast viðaukann og grunnlýsinguna sér að kostnaðarlausu á skrifstofu Almenna leigufélagsins ehf., að Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, á gildistíma grunnlýsingarinnar.
Reykjavík, 8. apríl 2019.
Almenna leigufélagið ehf.