Drög að árshlutauppgjöri fyrsta ársfjórðungs 2019 sýna að vænt afkoma félagsins er hagstæðari en afkomuspá gerði ráð fyrir. Samkvæmt drögunum er hagnaður félagsins á fyrsta ársfjórðungi fyrir skatta um 1.025-1.075 milljónir króna en afkomuspá félagsins gerði ráð fyrir hagnaði fyrir skatta upp á 325 milljónir króna á sama tímabili. Helsta ástæðan fyrir betri afkomu er að ávöxtun fjárfestingaeigna félagsins reyndist umfram afkomuspá.
Miðað við framangreint og væntingar félagsins fyrir árið er væntur hagnaður ársins 2019 fyrir skatta um 2.850-2.900 milljónir króna.
Uppfærð spá vegna ársins 2019 verður birt samhliða birtingu árshlutauppgjörs fyrsta ársfjórðungs þann 2. maí nk.
Nánari upplýsingar veitir Guðný Helga Herbertsdóttir í síma 660 5191 og á netfanginu fjarfestatengsl@vis.is.