Arion banki verður með víxlaútboð fimmtudaginn 14. mars 2019.  Um er að ræða víxla til 5 mánaða og 6 mánaða með gjalddaga 20. ágúst 2019 og 20. september 2019.  Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið verdbrefamidlun@arionbanki.is fyrir kl. 16:00 þann 14. mars en greiðslu- og uppgjörsdagur er 20. mars 2019.

Nánari upplýsingar veitir Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka,  s. 444 6760