Arion banki hf. lauk í dag útboði á tveimur markflokkum sértryggðra skuldabréfa.
Heildareftirspurn í útboðinu var 5.040 m. kr. og fjöldi tilboða var 35.
Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 26 bárust 17 tilboð að nafnvirði samtals 2.380 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 1,90-2,01%. Tilboðum að nafnvirði 1.980 m.kr. á kröfunni 1,97% voru samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 7.900 m.kr. að nafnvirði eftir útgáfuna.
Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 24 bárust 18 tilboð að nafnvirði samtals 2.660 m. kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,59-5,73%. Tilboðum að nafnvirði 2.420 m.kr. á kröfunni 5,65% voru samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 8.360 m.kr eftir útgáfuna.
Í samræmi við útboðstilkynningu kaupir Arion banki til baka 100m.kr. af ARION CB 19 og 140m.kr. af ARION CBI 19 gegn sölu í útboðinu.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Ísland þann 13. mars 2019.
Nánari upplýsingar veitir Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, theodor.fridbertsson@arionbanki.is, s. 444 6760